Fyrsti vinningur gekk ekki út í EuroJackpot að þessu sinni en heppinn Norðmaður var með 2. vinning og hlýtur hann rétt rúmar 260 milljónir króna í vinning. Þá voru sex miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 24 milljónir króna. Tveir miðanna voru keyptir í Danmörku og hinir voru keyptir í Þýskalandi, Noregi, Svíþjóð og Póllandi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti vikunnar en þrír miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í vinning. Tveir miðanna eru í áskrift og sá þriðji var keyptur í Lottó appinu.
Fréttir
eurojackpot
Úrslit í EuroJackpot 29. maí
29. May 2026, 18:54