Fréttir

eurojackpot

Vinnupása skilaði vinning

3. Jul 2026, 10:54

Heppinn Íslendingur vann tæpar 65 milljónir króna þegar hann fékk 3. vinning í Eurojackpot.

Rúmlega fimmtugur karlmaður, sem spilar reglulega í leikjum íslenskrar Getspár, neyddist til að taka örlitla pásu á annasömum vinnudegi vegna hægagangs samstarfs félaga. Á meðan hann beið heyrði hann Eurojackpot auglýsingu í útvarpinu.

Hafði heppnina með sér í Lottó appinu

Hann var ekki lengi að grípa símann, opna lottó appið og kaupa einn miða með sjálfvali. Töfin átti heldur betur eftir að skila sér því daginn eftir þegar fjölskyldumeðlimur hafði orð á sinni eigin lottó heppni, laumaðist hann í símann til að athuga með sinn miða. Þar blasti við 3. vinningur upp á 64,9 milljónir!

Rétti hann þá eiginkonunni símann sem ætlaði ekki að trúa þessu. Vinningurinn kemur á frábærum tíma því hjónin hafa verið að safna sér fyrir framtíðar framkvæmdum. Hluta vinningsins ætlar hann einnig að nýta til að aðstoða börnin sín sem safna fyrir fyrstu fasteigninni.

Starfsfólk Íslenskrar getspár hefur það skemmtilega hlutverk að slá reglulega á þráðinn til nýrra vinningshafa með góð tíðindi. Heppnin virðist vera með Íslendingum þessa dagana og gleðin alltumlykjandi. Allir vinningshafar fá innilegar hamingjuóskir og um leið fá allir spilarar innilega þakkir fyrir veittan stuðning. Hann skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk sem og íþrótta- og ungmennafélög um land allt, þar sem þau njóta góðs af öllum þeim ágóða sem Lottó gefur af sér.

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 18. september 2026

Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en þrír heppnir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra 97.5 milljónir króna. Einn miðinn var keyptur á Spáni, annar í Slóvakíu og sá þriðji í Tékklandi. Þá voru fimm miðahafar með 3. vinning og hver þeirra hlýtur 33 milljónir króna. Þeir miðar voru keyptir... Lesa meira

eurojackpot

EuroJackpot - Úrslit 15. september

Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en tveir heppnir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmar 103 milljónir króna. Einn miðin var keyptur í Þýskalandi og einn í Póllandi. Þá voru fjórir miðahafar með 3. vinning og hver þeirra hlýtur rétt rúmar 29 milljónir króna. Einn miðin var keyptur í... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 11. september 2026

Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en fimm heppnir miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 53 milljónir króna. Einn miðinn var keyptur í Danmörku, einn í Króatíu, einn í Svíþjóð og tveir í Noregi. Þá voru tíu miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 15 milljónir. Fjórir miðar v... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 8. september 2026

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld, en fimm heppnir miðahafar voru með 2. vinning. Hver og einn vinningshafi fær rúmlega 87 milljónir í sinn hlut. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi, en hinir í Slóveníu, Slóvakíu og Póllandi. Þá voru sjö miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 15 milljónir. ... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 4. september

Enginn var með 1. né 2. vinning í EuroJackpot útdrættinum í kvöld en fimm miðahafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 27,6 milljónir króna í sinn hlut. Einn miði var keyptur í Lettlandi, einn í Noregi, einn í Þýskalandi, einn í Tékklandi og einn í Póllandi. Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir