Fréttir

lotto

vikinglotto

eurojackpot

Milljólaleikur Getspár 2024

30. Nov 2024, 21:20

Jólaleikur Íslenskrar getspár

Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 1. desember til klukkan 18:40 þann 28. desember. Dregnir verða út 28 aukavinningar þann 28. desember, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna.

Leikurinn hefst sunnudaginn 1. desember

Allir þeir sem kaupa 10 raðir í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Milljólaleiknum. Á sölustöðum fylgir sérstakur lukkumiði sem þátttakendur verða að passa vel upp á en á netinu og í appinu kemur lukkunúmerið fram á miðanum. Allir áskrifendur verða einnig sjálfkrafa þátttakendur, óháð fjölda raða í áskrift*.

Haft verður samband við vinningshafa úr hópi áskrifenda og þá sem kaupa miða á netinu eða í appinu. Aðrir vinningshafar verða að geyma lukkumiðann sinn vel og framvísa til Íslenskrar getspár fyrir 28. desember 2025.

Vinningsnúmer verða birt á vef Íslenskrar getspár.

Dregið verður 28. desember 2024.

Athugið:

  • Lukkunúmerin gilda aðeins 28. desember 2024.

  • Miðar sem innihalda 10 raðir eru með í leiknum, einnig kerfismiðar og miðar sem innihalda Jóker ef verðgildi miða er a.m.k. á við 10 raða miða í viðkomandi leik.

  • Margviknamiðar sem uppfylla ofangreint og eru keyptir eftir að leikurinn hefst (miðnætti 26. nóvember) fá lukkunúmer sem fer í pottinn jafn oft og miðinn gildir fram að útdráttardegi.

  • Allir áskriftarmiðar eru með í pottinum – óháð fjölda raða í áskrift*.

  • Vinningsnúmer eru birt á lotto.is

  • Til að vitja vinninga þarf að framvísa lukkumiðanum til Íslenskrar getspár fyrir 28. desember 2025.

Dæmi: 10 raða seðill í Lottó kostar 1.500 krónur og því fylgir lukkunúmer með þeim miða.

* Dæmi: Jóna er með 10 raðir í áskrift í Lottó og 8 raðir í Vikinglotto og 3 raðir í EuroJackpot á föstudögum. Tölvukerfi Getspár útvegar Jónu sérstakt lukkunúmer fyrir hvern áskriftarmiða í hverjum útdrætti. Jóna fær því samtals 4 lukkunúmer fyrir EuroJackpot áskriftarmiðann sinn (6. 13. 20. og 27. desember) 4 lukkunúmer fyrir Lotto áskriftarmiðann sinn (7. 14. 21. og 28. desember) og 4 lukkunúmer fyrir Vikinglotto áskriftarmiðann sinn (4. 11. 18. og 25. desember).

lotto

Úrslit í Lottó 25. júlí - Einn með 1. vinning

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær hann rúmar 11 milljónir króna í sinn hlut. Einn var með bónusvinninginn og fær rúmar 390 þúsund krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Hagkaup Eiðistorgi. Enginn var með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þú... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot - 1. vinningur til Spánar

Stálheppinn Spánverji var einn með 1. vinning í EuroJackpot og fær hann í sinn hlut rúma 10 milljarða króna. Þrír Þjóðverjar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmar 108 milljónir. Þá voru tuttugu og fjórir miðaeigendur með  3. vinning og fær hver þeirra rúmlega 7,6 milljónir í vasann. Tólf miðar voru keypti... Lesa meira

eurojackpot

Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!

Stórvinningshöfum í Lottóappinu fjölgar enn. Sá nýjasti bættist í hópinn á þriðjudagskvöldið þegar 2. vinningur í EuroJackpot, að upphæð 45,4 milljónir króna, gekk út til spilara á höfuðborgarsvæðinu. Vinningsmiðann keypti hann í appinu. Vinningshafinn, sem er á fertugsaldri, opnaði appið stuttu eftir útdrátt og sá að ... Lesa meira

vikinglotto

Úrslit í Vikinglotto 22. júlí

Hvorki 1., 2. né hinn al-íslenski 3. vinningur gengu út í Vikinglotto útdrætti kvöldsins. Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í sinn hlut. Fjórir miðanna eru í áskrift og sá fimmti var keyptur í Lottó appinu.

lotto

„Við erum orðin skuldlaus“

Ungt par fékk heldur betur óvænt símtal á mánudagsmorgun. Parið, sem er á þrítugsaldri og á lítið barn saman, var í fríi og á akstri þegar síminn hringdi. Erindið var sannarlega ánægjulegt. Parið átti nefnilega eina Lottómiðann þar sem allar tölurnar voru réttar síðasta laugardag. Fyrsti vinningur var fimmfaldur og fær... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir