Fréttir

lotto

Stóri vinningurinn kom á aukamiðann

30. May 2024, 14:41

„Ég er bara ennþá ekki að trúa þessu!“, segir ung móðir með tvö smábörn.

Heppnin var svo sannarlega með lítilli fjölskyldu í fæðingarorlofi um síðustu helgi þegar óskiptur fyrsti vinningur í Lottó fell í þeirra hlut, rúmlega átta og hálfar skattfrjálsar milljónir króna. Fjölskyldan er nýflutt á höfuðborgarsvæðið og festi kaup á eigin húsnæði ekki alls fyrir löngu og því var þakklætið algjörlega ósvikið. „Ég er bara ennþá ekki að trúa þessu,“ sagði eigandi vinningsmiðans og bætti við að tímasetningin gæti varla verið betri núna í orlofinu.

Hún segir að vinningurinn muni auðvelda þeim að standsetja nýju íbúðina eftir eigin höfði og láta draumana um frekara nám mögulega rætast og kannski komast í langþráð frí. Sú heppna sagðist alltaf spila með 10 raðir í appinu en að þessu sinni hefði hún bætt við aukamiða með fimm röðum. Hún fékk tilkynningu í appinu um þrjá rétta á aðalmiðanum en þegar hún rýndi í aukamiðann kom stóri vinningurinn í ljós!

Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar fjölskyldunni innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Úrslit í Lottó 25. júlí - Einn með 1. vinning

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær hann rúmar 11 milljónir króna í sinn hlut. Einn var með bónusvinninginn og fær rúmar 390 þúsund krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Hagkaup Eiðistorgi. Enginn var með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fimm voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þú... Lesa meira

lotto

„Við erum orðin skuldlaus“

Ungt par fékk heldur betur óvænt símtal á mánudagsmorgun. Parið, sem er á þrítugsaldri og á lítið barn saman, var í fríi og á akstri þegar síminn hringdi. Erindið var sannarlega ánægjulegt. Parið átti nefnilega eina Lottómiðann þar sem allar tölurnar voru réttar síðasta laugardag. Fyrsti vinningur var fimmfaldur og fær... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 96,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Sex skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 298 þúsund krónur í vasann. Fjórir miðar voru keyptir á appinu okkar Lottó, einn á vefsíðu okka... Lesa meira

lotto

Lottó - enginn með 1. vinning

Lottópotturinn stækkar þar sem hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en níu voru 2. vinning fær hver þeirra 125 þúsund krónur.  Fjórir miðar voru keyptir í Lottó appinu, þrír á lotto.is og tveir eru í áskrift.

lotto

Fjórfaldur pottur næst - Úrslit í Lottó 4. júlí 2026

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn heppinn áskrifandi var með bónusvinninginn og fær hann tæplega 1,2 milljón krónur  í vasann. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru fimm... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir