Heppinn spilari sem keypti miðann sinn á lotto.is var einn með allar tölurnar réttar í 4földum potti vikunnar og fær hann því óskiptan pottinn sem nam rúmlega 54,5 milljónum króna.
Þrír skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 222 þúsund króna vinning, einn miðinn er í áskrift en hinir tveir voru keyptir á lotto.is.
Einn var með 1. vinning í Jóker sem hljóðar upp á 2,5 milljónir króna, miðinn góði var keyptur í Sjoppunni í Ólafsvík. Þá voru alls sex spilarar sem fengu 2. vinning og fá þar með 125,000 kall í vasann, tveir miðanna eru í áskrift, þrír voru keyptir í appinu og einn á lotto.is.
Heildarfjöldi vinningshafa í þessum útdrætti var 7,610