Stálheppinn Þjóðverji var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúma 4,6 milljarða króna í vinning. Þá voru sex með 2. vinning og fær hver þeirra 43 milljónir króna. Þrír miðar voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Svíþjóð og einn í Póllandi. Þrettán miðahafar skiptu með sér 3. vinning og hlýtur hver þeirra rúmar 11 milljónir króna. Fimm miðar voru keyptir í Þýskalandi, þrír í Svíþjóð, einn í Ungverjalandi, einn í Finnlandi, einn á Noregi, einn í Danmörku og einn í Króatíu.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker útdrætti kvöldsins en einn heppinn miðahafi sem keypti miða sinn inn á vefsíðu okkar Lotto.is, var með 2. vinning og hlýtur hann 125 þúsund krónur í vinning.