Fréttir

lotto

Starfslokin breyttust á augabragði

8. Nov 2024, 14:48

Stærsti sexfaldi pottur sögunnar gaf vel af sér um þarsíðustu helgi en alls voru um 18 þúsund manns sem fengu vinning, þar af voru sjö með bónusvinninginn og 15 voru með annan vinning í Jóker. Tveir ofurheppnir spilarar voru svo með allar tölurnar réttar og hlaut hvor um 57 milljónir í sinn hlut.

Annan miðann áttu hjón sem standa á miklum tímamótum en auk þess að vera við starfslok höfðu þau nýverið selt húsnæðið sitt til að komast í búsetu sem hentar betur þeirra þörfum. Vegna óvæntra útgjalda, á borð við uppgreiðslukostnað lána, var eftirtekjan allnokkru minni en þau höfðu gert ráð fyrir. Það voru því sterkar tilfinningar sem gerðu vart við sig þegar ljóst var að stóri vinningurinn hefði breytt þessari jöfnu til batnaðar um 57 milljónir og enn meiri tilhlökkunar til efri áranna.

Hinn vinningshafinn ætlar bara að sækja sínar 57 milljónir seinna

Hinn heppni miðaeigandinn, sem er áskrifandi og býr á landsbyggðinni, tók fréttunum af öllu meiri ró og sagðist einfaldlega ætla að koma og sækja vinninginn næst þegar hann ætti eitthvað erindi í höfuðborgina.

Við óskum vinningshöfunum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Úrslit í Lottó 21. nóvember – 5faldur næst!

Potturinn stækkar og stækkar hann verður 5. faldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra tæpar 390 þúsund krónur. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur á Lottó appinu Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins ... Lesa meira

lotto

Lottó - 4. faldur næst!

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Fjórir miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra tæpar 162 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur á Olís á Siglufirði, einn miðinn á vef okkar lotto.is og tveir miðar eru í áskrift. Einn var með allar töl... Lesa meira

lotto

Lottó - 3. faldur næst!

Potturinn stækkar og verður 3. faldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra rúmar 448 þúsund krónur. Báðir miðarnir eru í áskrift. Einn Jókerspilari hreppti 1. vinning í kvöld og fær 2,5 milljónir fyrir það. Miðinn var keypt... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 31. október - 2-faldur næst!

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag, þar sem hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fjórir voru 2. vinning fær hver þeirra 125 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur í Fjarðakaup, einn inn á vef okkar Lottó.is og tveir... Lesa meira

lotto

eurojackpot

„Loksins gerist eitthvað gott!“

Þrefaldur pottur upp á rúmar 45 milljónir króna fór svo sannarlega á góðan stað síðasta laugardag. Rúmlega fimmtug einstæð móðir með nokkur börn sem hefur verið að glíma við heilsubrest og tjón á heimilinu var ein með allar tölurnar réttar. „Loksins gerist eitthvað gott!“ sagði konan þegar hún kom loks upp orði. Það er... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir